Aðalvalmynd

Nýr vettvangur frétta

10. apríl 2008 klukkan 10:11
sælinú, ég stofnaði barnanetssíðu fyrir litlu og er farin að setja inn fréttir þar. misgáfulegar að sjálfssögðu .

barnanet.is/5500

bæjó

Þrívíddarsónar 27v. = 6 m

13. janúar 2008 klukkan 22:30
Hallú,

Ég stóð við stóru orðin og setti þrívíddarsónarmyndirnar inn en gallinn við svona litlar og krúttlegar stafrænar myndavélar er sá að þær eru svo litlar og krúttlegar að það er mjög auðvelt að týna þeim og mjög erfitt að finna þær.  Svo bumbumyndirnar koma seinna.  Enjoy.

kv. Ína pína bumbulína

Jólaverslunin 22v6d

15. desember 2007 klukkan 13:55
Halló halló,

Úff, vil bara beina þeim ráðleggingum til barnafólks að halda sig frá Smáralindinni í dag.  Þetta er nú meiri bilunin.  Ég er bara hérna því ég fæ yfirvinnukaup fyrir það Ullandi

En allavega, þessi vinnuferð byrjaði vel.  Fór á Golfinum því það var svo mikil hálka á göngustígunum að ég vissi ekki nema það yrði á vegum líka.  Hann var auðvitað frosinn inn að beini greyið, enda kalla ég hann yfirleitt frystikistuna.  Byrjaði á því að ætla að opna afturhurðina til þess að setja pakka afturí sem eiga að sendast út á land.  Neinei hurðin frosin.
Svo ég rölti hringinn og ætlaði að opna hina afturhurðina...  Frosin.
Ákvað að tékka á skottinu, sem reyndist opnanlegt.  Var nú farin að hafa smá áhyggjur af því að þurfa kannski að klifra yfir í bílstjórasætið í gegnum skottið, ekki alveg eins lipur og ég var... Glottandi
En sem betur fer reyndist bílstjórahurðin ófrosin og ég gat farið af stað í vinnuna.  En auðvitað var ævintýrið ekki búið, þá væri þetta ekki alvöru Ínuævintýri..
Ég var semsagt á leiðinni í Smáralindina á Miklubrautinni á svona ca. 90 km hraða þegar frosnu hurðirnar ákváðu að verða ófrosnar!!  Sem betur fer var bensínstöðin rétt hjá svo mín gat rennt þangað inn og lokað báðum hurðunum.  Úff bara, þetta var ekkert smá sem mér brá. Köttur úti í mýri, setti upp á sig stýri og úti er ævintýri.
Krílówich hefur það fínt.   Mesta sportið þessa dagana virðist vera að sparka af krafti í neðanvert kviðarholið þegar ég sest niður að slappa af nýkomin heim úr vinnunni...  Bumbuummálið virðist loksins vera hætt að aukast gríðarlega dag frá degi svo ég er bara nokkuð sátt núna.  sjáum svo hvað gerist þegar maður fer að úða í sig jólakræsingunum af alvöru. Óákveðinn

kv. Ína bumbulína

Lofa bót og betrun.. 22v4d

13. desember 2007 klukkan 13:29

Jæja.  Ég verð víst að láta undan gríðarlegum þrýstingi og fara að blogga aftur.  Fólk þykist eiga kröfur á bumbumyndir og daglegar skýrslur á líðan mína og krílisins. 

Ef Íris systir fengi að ráða væri ég orðin ein af þessu óþolandi fólki sem er komið með barnalandssíðu með sónar- og bumbumyndum og þegar farin að skrifa fyrstu persónusögur úr leginu.  Sorry fólk.  Mér finnst það bara svo endalaust lummulegt.

Þetta verður semsagt bara að duga, ég ætla að reyna að vera dugleg að blogga og við fyrsta tækifæri hendi ég inn bumbumyndum.  Þegar krílið svo lítur dagsins ljós verður stofnuð síða í þess nafni og ég mun samviskusamlega, eftir því sem krílið gefur mér tíma til, setja inn fréttir og myndir.  Þær fréttir og myndir verða aftur á móti skrifaðar frá mér.  Ekki frá ómálga barninu.  Já ómálga þýðir að það geti ekki talað Íris.

Af mér er bara gott að frétta, desember ætlar að verða mikið bókaður mánuður að vanda...  Ég er að verða uppiskroppa með línur á dagatalinu mínu til að krota niður hluti sem ég þarf að muna.  Jólin verða haldin í faðmi fjölskyldunnar á efri hæðinni en fyrir þá sem ekki vita bý ég í Mosó í fjölbýli og í íbúð 203 en mamma og pabbi eru í 301.  Stutt að fara í jólamatinn. :) Í fyrsta sinn síðan 2001 verðum við öll systkinin í mat hjá mömmu og ég hlakka mikið til.  

Jæja, farin að vinna. 

Bæjó í bili.

Bjarga mannorðinu

15. júní 2007 klukkan 16:23
Halló halló,

Mér skilst að ef maður googlar mig fái maður bara upp það hvað ég sé léleg fyllibytta svo ég verð nú að setja inn nýja færslu hérna.  Stefnan reyndar tekin á 101 í kvöld því ég og Kristín hin ætlum að hittast og fá okkur að borða og fara síðan á smá pöbbarölt.  Verður gaman að sjá hvort þolið eykst ekki hjá minni með þessu reykingarbanni.  Leyfi ykkur kannski að heyra ferðasöguna af röltinu á morgunn.  Ég er nefnilega í fríi og eyði ótæpilegum tíma online þessa dagana.

kv. Ína pína

Lélegasta fyllibytta í heimi

14. janúar 2007 klukkan 17:23

jább, það er ég, lélegasta fyllibytta í heimi.  Fjórir bjórar og ég vaknaði í fötunum í morgun.  Búin að senda kærastanum kjánaleg sms og hver veit hvað.


En þá er ég komin með kvótann.  Ég slepp semsagt ef ég held mig við bjórinn og fer ekki yfir þrjá.  Já og kvöldmatur er nauðsynlegur.  Þannig að með þetta að leiðarljósi á ég að geta farið út á lífið án þess að breytast í blaðrandi, ælandi kjána.


Annars var virkilega gaman að hitta Aron og Hörpu. Líka langt síðan maður hefur sest niður með Katrínu, Írisi og Guðmanni.  Annars þekkti ég voðalega fáa, Birnu Önnu læknis og svo kom Fabio þarna í restina.


Kom heim um hálftvö og já ég er komin á fætur og búin að blogga rúmlega 11 um morguninn.  Nú er næst á dagskrá að baða hundinn og fá sér eitthvað að borða en ég held að það sé ekki mjög heilsusamlegt að sleppa kvöldmatnum, fara á fyllerí, sleppa morgunmatnum og vera ekki búin að fá mér hádegismat.  Ætla að gera eitthvað í því snöggvast.  Ferlegt alveg, ég nenni yfirleitt ekki að borða þegar ég er svona ein heima.

Bless í bili

Bloggiti bloggiti blogg

14. janúar 2007 klukkan 00:03

Halló fólk,

Ég stóð við stóru orðin og bauð fólki heim.  Það tókst bara með ágætum og mætingin var framar öllum vonum.  Þurfti m.a.s. að fá lánaða 3 stóla hjá nágrannakonunni minni.  Auðvitað voru allir fashionably late, komu ekki fyrr en um hálftíu tíu.  En það er alltaf svoleiðis... ;)


Þórir var fyrstur á svæðið með gellurnar sínar og svo týndist fólkið inn eitt af öðru.  Vigdís vinkona kom með Svein sinn og litla dýrið sitt sem er svona þrisvar sinnum minna en Bangsi þegar ég fékk hann.  Og Kristín hin lætur sig aldrei vanta.


Ég hélt ekki að það myndi nokkurn tíma gerast en sófaskrýmslið réði ekkert við þetta og stólarnir fylltust um leið.  Nú er það bara að skella sér í búðir og kaupa nokkra klappara áður en maður bíður fólki heim aftur. 


Ég klikkaði reyndar á myndavélinni en það verður að fyrirgefast svona í fyrsta partýinu.  En Ómar verður vonandi ekki veðurtepptru á Ísafirði næst þegar við bjóðum heim.  Þá verða tveir gestgjafar og ég slepp við að sjá um allt ein. :)  Og þó, endar það ekki alltaf þannig hvort eð er.


Bangsi var rosalega gestrisinn og tók vel á móti öllum.  Vigdís hleypti honum út á svalir í snjóinn og hann varð snjóBjörn. Hoppaði og skoppaði eins og kanína og það var alveg hrikalega gaman hjá honum.  Litla krílið var ekki alveg nógu hrifið af Bangsa og gelti bara á hann. 


Partýið var ekki úr hófi langt og fólk fór heima á tiltölulega siðsamlegum tíma, sumir skemmtu sér meira en aðrir, með öðrum...  En svoleiðis tilkynnir maður ekki á netinu. 

Eftir sat ég og tók til.  Gaman að fá heim fullorðið fólk sem hagar sér og reykir ekki.  Það eina sem ég þurfti að gera var að týna saman flöskur og henda glösunum í uppþvottavélina.  Ætla að spara mér skúringarnar þangað til í þynnkunni á morgunn. 


Nú er eini hausverkurinn að finna sér eitthvað að fara í í kvöld.  Fer með Írisi og Katrínu í afmælið hans Arons á Pravda og maður verður víst að vera frekar gellulegur. 

Ég ætla samt ekki að stressa mig yfir því.  Sat á mér en var NÆSTUM því farin út að kaupa mér eitthvað til að fara í.  Maður verður bara að stóla á það hvað maður er náttúrulega sjarmerandi.


Hlakka mikið til að fá Kristjönu vinkonu suður en hún kíkir bráðum í nokkra daga. 

Jæja, kominn tími til að haugast að verki.  Ég ætla að taka aðeins til hendinni hérna áður en ég fer út.


Djammkveðja frá Ínunni.

Byrjum bara strax

11. janúar 2007 klukkan 23:47
Jæja, fyrst ég setti það á prent ætla ég strax að byrja að vera félagslyndari.  Fór í Bónus áðan, keypti veitingar og nú er bara heimahittingur hjá mér annað kvöld.  Bjallið bara í mig til að fá tímasetningu, heimilisfang og annað!

kv. Ínus

Brúðkaupsmynd

11. janúar 2007 klukkan 05:39
Verð að skella inn mynd sem var á netinu af Eydísi vinkonu og Gulla Búa en þau voru að gifta sig.  Gullfalleg hjón!!

Da dada raaaaa

já, ótrúlegt, tvær færslur í sömu vikunni!!

11. janúar 2007 klukkan 05:18

Halló halló,

Ómar úti á landi og ég ein heima.  Hvað er þá betra en að hita upp afganga og hanga í lappanum með kveikt á sjónvarpinu.  Var ég búin að nefna að ég ligg í rúminu og sjónvarpið er veggur?  Myndvarpinn að gera góða hluti.


Endaði með því að ég fór á bloggarölt.  Byrjaði á því að kíkja hvort eitthvað væri að frétta af bekkjarmótinu okkar næsta sumar.  Svo kíkti ég á síðuna hans Bjarna Kristjáns, alltaf gaman að lesa bloggið hans.  Þaðan datt ég inn á síður hjá fleiri Siglfirðingum.  Gotti orðinn piparsveinn og nóg að gera hjá honum, einstæður faðir, fótboltakappi, músíkant, full vinna og fleira. 


Þaðan fór ég af einskærri forvitni inn á síðurnar hjá Eisa,  þetta er orðið svo fullorðið, Gunnu Finna sem var með virkilega flottar jólamyndir og m.a.s. Ívari Elefsen.  Þetta var með viðkomu hjá Tinnu Mark, Evu Karlottu og fleirum. 


Rosalega er fólk duglegt að setja inn myndir, verð að segja að ég dáist að fólki sem man alltaf eftir myndavélinni.  Nú tek ég myndavélina hans Ómars í gíslingu. Skelli hérna inn tveim myndum, fjölskyldan á Ísafirði um jólin og Bangsinn minn með jólagjöfina frá ömmu sinni og afa á Ísafirði.


Ísfirska fjölskyldan plús ég mínus Baldur

Bangsi að drepa ósvífna apann

Annað sem ég sá sums staðar á þessu flakki mínu var áramótaheit.  Ég var sosum búin að gera nokkur, svona eins og allir aðrir.  Kannski allt í lagi að skella þeim hérna á prent, þá stendur maður kannski við þetta... ;)


1.  Vera félagslyndari.  Ég er alltof löt að rífa mig upp af rassgatinu og fara út að hitta fólk.  Samt er ég alltaf jafn fegin þegar ég hef látið af því verða.  Nú er það bara harkan sex í þessum efnum.  Set metnaðinn sem annað fólk er að setja í megranir og að hætta að reykja í þetta.


2.  Duglegri að prófa nýja hluti í eldhúsinu.  Amma segir að matarástin sé það eina sem blífur og ég ætla að halda Ómari á króknum með það að leiðarljósi.  Svo finnst mér þetta bara gaman.


3.  Fara meira heim.  Það er bara staðreynd að ég þarf að fara reglulega þangað til að hlaða batteríin og það er hreinlega til skammar hvað ég fór lítið á árinu sem er að líða.


4.  Halda áfram skynseminni í matarræðinu og halda við árangrinum.  5kg farin í haust.


5.  Vera duglegri í húsverkunum.  Ég veit að þetta er leiðinlegra en að horfa á málningu flagna en það verður bara að gera þetta.  Koma reglu á þetta.

Jæja, þetta verður nú leiðinleg lesning, sem betur fer les þetta enginn...  Farin í bólið.

Góða nótt.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Mæli með

Hjólreiðum, er reyndar aum í botninum en það er alveg ótrúlegt hvað þetta á vel við antisportistann

Göngutúr í rigningunni, furðulega hressandi, klæða sig eftir veðri samt...

The Matador, frábær mynd, Pierce og Greg fara á kostum!!

Hotel Fidan í Marmaris Tyrklandi

Caramella, kokteill með Bailey's, karamelluís og mjólk

Kattholt, frábært að geta sett kisann á hótel þegar maður þarf að fara í frí